Viðskipti erlent

Facebook birti fínasta ársfjórðungsuppgjör og hlutabréfin falla í verði

Samúel Karl Ólason skrifar
Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri og stofnandi Facebook.
Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri og stofnandi Facebook. Vísir/GETTY
Facebook birti í dag ársfjórðungsuppgjör fyrir þriðja ársfjórðung en hlutabréf fyrirtækisins féllu í kjölfarið um 7,7 prósent. Þrátt fyrir að uppgjörið hafi komið vel út og hagnaður fyrirtækisins, sem og vöxtur hafi verið fram úr spám greinenda.

Fjármálastjóri Facebook sagði í dag að líklegast myndi hægja á vexti fyrirtækisins á næsta fjórðungi vegna takmarkanna á auglýsingum sem hægt sé að birta. Facebook vilji passa að þær fari ekki í taugarnar á notendum sínum og því sé ekki hægt að hafa þær of margar. Þá tilkynnti hann einnig að fyrirtækið myndi eiga í miklum fjárfestingum á næsta fjórðungi, sem mun dragar úr hagnaði þess, til skamms tíma.

Mark Zucerkberg birti meðfylgjandi myndband á Facebooksíðu sinni nú í kvöld. Facebook hefur einblýnt á að fjölga myndböndum á miðli sínum og frá því í maí hefur beinum útsendinum á Facebook fjölgað um 400 prósent.

Hægt er að sjá glærukynningu og hlusta á símafund forsvarsmanna Facebook við fjárfesta hér.

Virkum notendum Facebook hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum árum. Á þriðja ársfjórðungi voru tæplega 1,2 milljarður manna sem notaði Facebook á hverjum degi og þar af rétt rúmlega milljarður fór á Facebook í gegnum síma.

Virkir notendur á mánuði eru 1,8 milljarður manna.

Þá hafa tekjur Facebook einnig aukist jafnt og þétt á undanförnum árum. Lang mestar tekjur fyrirtækins koma til vegna auglýsinga. Af rúmum sjö milljörðum dala á ársfjórðunginum voru einungis 195 milljónir sem eru ekki til komnar vegna auglýsinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×