Sport

Fá úlpu að gjöf fyrir hvert Íslandsmet á árinu 2014

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vigdís Jónsdóttir og Jónas Egilsson.
Vigdís Jónsdóttir og Jónas Egilsson. Mynd/Heimasíða FRÍ
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur hafið samstarf við Sjóklæðagerðina hf. sem framleiðir útivistarfatnað undir vörumerkinu 66°NORÐUR. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins.

Vigdís Jónsdóttir úr FH, sem setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í sleggjukasti fyrr í mánuðinum, var boðuð á skrifstofu FRÍ í morgun þar sem formaður og framkvæmdastjóri FRÍ, Jónas Egilsson, afhenti henni úlpu frá 66°NORÐUR.

Vigdís kastaði 55,23 metra á Coca Cola móti FH í síðustu viku en hún bætti þá íslandsmet Söndru Pétursdóttur um meira en metra og sitt persónulega met um meira en tíu metra.

66°NORÐUR. gefur þeim frjálsíþróttamanni sem setur Íslandsmet í fullorðinsflokki á árinu úlpu að gerðinni Þórsmörk en Vigdís var reyndar ekki sú fyrsta til að fá slíka gjöf.

Aníta Hinriksdóttir úr ÍR hafði áður fengið úlpu en hún setti Íslandsmet í 800 metra hlaupi innanhúss á RIG leikunum í janúar síðastliðnum.

Við tilefnið var Vigdísi einnig formlega tilkynnt að hún sé nú komin í landsliðshóp FRÍ og á möguleika á að vera valin m.a í Evrópukeppni landsliða sem fram fer í Tblisi, Georgíu, í sumar.   Lokaval fyrir mótið fer fram að loknu Vormóti ÍR þann 10. júní.


Tengdar fréttir

Fimleikastúlkan sem endaði í sleggjukasti

Vigdís Jónsdóttir, 18 ára frjálsíþróttakona úr FH, stórbætti árangur sinn í sleggjukasti um síðustu helgi og bætti um leið Íslandsmetið í greininni. Hún ætlaði sér að æfa spjótkast eftir farsælan feril í fimleikum. Þessi efnilega íþróttakona setur stefnun




Fleiri fréttir

Sjá meira


×