Erlent

Fá að hitta son sinn aftur

Freyr Bjarnason skrifar
Brett og Naghemeh King.
Brett og Naghemeh King.
Breskir saksóknarar hafa dregið til baka handtökuheimild sem var gefin út á hendur bresku pari sem flutti veikan fimm ára son sinn af sjúkrahúsi þrátt fyrir mótbárur lækna.

Foreldrarnir ferðuðust með drenginn, sem er með heilaæxli, til Spánar. Þar ætluðu þeir að selja fasteign til að geta borgað fyrir geislameðferð í Tékklandi eða í Bandaríkjunum.

Þau voru handtekin á Spáni og hefur málið vakið mikla athygli í Bretlandi. Faðir drengins hefur m.a. gagnrýnt aðgerðir lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×