Tónlist

Eyþór Ingi og Matti með nýja útgáfu af Higher and Higher með Jet Black Joe

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eyþór Ingi syngur lagið.
Eyþór Ingi syngur lagið.
Þeir Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Matthías Stefánsson frumsýna í dag nýtt myndband þar sem þeir endurgera lagið Higher and Higher með Jet Black Joe.

Lagið var gert fyrir Bíómyndina Alfheims Edge sem er bresk íslensk stuttmynd væntanleg seinna á árinu. Eyþór Ingi og Matti eru að vinna að plötu með nýju efni og er hún einnig væntanleg seinna árinu.

„Ég og Matti vorum að vinna soundtrack við þessa stuttmynd þegar við duttum inná einhvern fíling og þessi útgáfa fæddist. Við fundum einhverja tengingu okkar á milli,“ segir Eyþór í samtali við Lífið.

„Við kláruðum soundtrackið og erum komnir vel á veg með nýtt frumsamið efni á plötu sem kemur út í lok árs eða snemma á næsta ári.“ 

Lagið verður frítt á tonlist.is í viku. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×