Menning

Eyrún Ósk hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eyrún Ósk Jónsdóttir ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra í dag.
Eyrún Ósk Jónsdóttir ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra í dag. mynd/reykjavíkurborg
Eyrún Ósk Jónsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir árið 2016 fyrir ljóðahandritið Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti henni verðlaunin í dag sem nema 700 þúsund krónum. Fyrstu eintökin af bókinni komu um leið úr prentun í útgáfu Bjarts.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að Eyrún eigi að baki feril sem rithöfundur, leikstjóri og leikari en hún hefur skrifað fjölda leikrita sem hafa verið sett upp í leikhúsum hérlendis og erlendis auk þess sem hún hefur tvö kvikmyndahandrit. Þá hefur Eyrún jafnframt sent frá sér þrjár skáldsögur og tvær ljóðabækur.

Alls bárust 52 óbirt ljóðahandrit undir dulnefni í keppnina en dómnefndina skipuðu Úlfhildur Dagsdóttir formaður, Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir og Bjarni Bjarnason.  

„Verðlaunabókin fæst að sögn dómnefndar við heim hinna óskrifuðu reglna. Að baki bókinni liggja spurningar eins og; hverjar eru hinar óskráðu reglur, hver setti þær, hvernig eru þær hugsaðar, hvaða refsing liggur við að brjóta þær og hve mikið er að marka þær?

Dómnefndin var einhuga um að ljóðin töluðu með ferskum hætti inn í hversdagleika okkar Íslendinga og opnuðu augu okkar með ljóðrænum, hugvitsamlegum og frumlegum hætti fyrir dularfullum mörkum einkalífs og opinbers lífs og væru því afar vel að Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar komin,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×