Viðskipti innlent

Eyrir Invest selur 2% í Marel

Haraldur Guðmundsson skrifar
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel og einn eigenda Eyris Invest.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel og einn eigenda Eyris Invest. Vísir/Anton
Eyrir Invest hf. hefur selt 15 milljónir hluta eða rétt rúm tvö prósent í Marel hf. Í tilkynningu frá félaginu segir að markaðsviðskipti Landsbankans hafi gert Eyri kauptilboð fyrir hönd MSD Partners L.P. sem kaupa hlutina á 285 krónur á hlut. Með viðskiptunum verða MSD Partners sjöundi stærsti hluthafi Marel.

Eyrir verður eftir sem áður stærsti hluthafi Marel með yfir 200 milljónir hluta eða um 27,2% af útgefnum hlutum. Félagið er meðal annars í eigu Landsbankans, Þórðar Magnússonar, Árna Odds Þórðarsonar, forstjóra Marel, og Lífeyrissjóðs verslunarmanna. 

„Eyrir Invest er langtímafjárfestir og hefur verið kjölfestufjárfestir í Marel síðan 2005. Marel starfar samkvæmt langtímastefnu sinni og nýleg kaup félagsins á MPS heppnuðust vel. Eyrir hefur mikla trú á möguleikum Marel til áframhaldandi vaxtar sem og getu félagsins til að skila góðri afkomu. Eyrir hyggst áfram vera kjölfestufjárfestir í Marel,“ segir í tilkynningunni. 

Þar segir einnig að stjórn Eyris Invest hafi í framhaldi af viðskiptunum heimilað stjórnendum félagsins að innleysa B-hluti félagsins. Fjárhagsstaða Eyris sé sterk en félagið er langtímafjárfestir með þá stefnu að styðja við alþjóðleg iðnfyrirtæki og sprotafyrirtæki í vexti.

MSD Partners, L.P., sem skráð er hjá SEC í Bandaríkjunum sem fjármálaráðgjafi, var stofnað árið 2009 af eigendum MSD Capital, L.P. til að gera lokuðum hópi fjárfesta kleift að taka þátt í fjárfestingum sem MSD Capital skipuleggur. MSD Capital var stofnað árið 1998 til að stýra eignum Michael Dell og fjölskyldu hans. Dell er samkvæmt lista Forbes 41. ríkasti maður heims en hann stofnaði tölvuframleiðandann bandaríska Dell Technologies. 

Hlutabréf Marel hafa hækkað um 5,3 prósent í Kauphöll Íslands frá opnun markaða í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×