Í dag var dregið í fjórðungsúrslit VISA-bikarkeppni kvenna þar sem tvö 1. deildarlið voru með í pottinum.
ÍBV hefur komið allra liða mest á óvart í bikarkeppninni til þessa og lagt tvö úrvalsdeildarfélög að velli á leið sinni í fjórðungsúrslitin. Liðið drógst nú gegn Fylki á útivelli.
Íslandsmeistarar Vals fara í heimsókn til Húsavíkur þar sem liðið mætir Völsungi. Þá tekur Breiðablik á móti Þór/KA og bikarmeistarar KR mæta Stjörnunni á útivelli.