Tónlist

Eyjapeyi með plötu á leiðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sindri Feyr er fær tónlistarmaður.
Sindri Feyr er fær tónlistarmaður. vísir
„Ég er að fara gefa út plötu sem heitir Way I’m Feeling núna í sumar,“ segir Sindri Freyr, tónlistarmaður frá Vestmannaeyjum, háskólanemi og eigandi ferðaskrifstofu, sem var að gefa út nýtt tónlistarmyndband við lagið I Hope sem verður á plötu sem kemur út í sumar.

„Fyrsta lagið á plötunni heitir I Hope. Lagið er samið af mér og Andra Þór Jónssyni og tekið upp hjá Arnari Guðjónssyni  hjá Aeronaut Studios. Ég fékk Adda Gísla til að tromma yfir lagið.“

Hann segir að myndbandið sé tekið upp af Ágúst Elí Ásgeirssyni sem sá einnig um alla eftirvinnslu.

„Mest megnið af plötunni er tekið upp hjá Arnari Guðjónssyni hjá Aeronaut Studios, en einnig hefur Eyþór Úlfar Þórisson komið að upptökum.“

Lögin á plötunni eru samin af Sindra sjálfum og Andra Þór Jónssyni en hann ætlar sér að halda útgáfutónleika í sumar og mun tilkynna um þá á Facebook-síðu sinni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×