Viðskipti innlent

Eyjamaður bakaði köku ársins 2017

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kaka ársins 2017 er glæsileg.
Kaka ársins 2017 er glæsileg. Mynd/Aðsend
Dómnefnd hefur valið köku Davíðs Arnórssonar, bakara í Vestmannaeyjum, köku ársins 2017. Fyrsta kakan verður afhent Elizu Reid forsetafrú við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á morgun.

Keppnin var haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi skyr frá MS. Sigurkakan er lagskipt og inniheldur meðal annars möndlukókosbotn, hindberjahlaup og skyrfrómas með lime.

Davíð, höfundur kökunnar, starfar hjá fyrirtækinu Stofan bakhús í Vestmannaeyjum. Kaka ársins er valin árlega og fer keppnin þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð.

Dómarar í keppninni voru Margrét Kristín Sigurðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Aðalsteinn Magnússon, sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni, og Gunnar Örn Gunnarsson, bakarameistari og sölumaður hjá Ölgerðinni.

Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna Landsambands bakarameistara um land allt föstudaginn 17. febrúar og verður til sölu það sem eftir er ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×