Handbolti

Eyjakonur með fullt hús stiga eftir sigur á Val

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vera Lopes skoraði þrjú mörk fyrir ÍBV í kvöld.
Vera Lopes skoraði þrjú mörk fyrir ÍBV í kvöld. Vísir/Valli
ÍBV vann tveggja marka sigur, 27-25, á Val á heimavelli í fyrsta leik kvöldsins í Olís-deild kvenna. Eyjakonur voru fimm mörkum yfir í hálfleik, 17-12.

Díana Dögg Magnúsdóttir var markahæst í liði ÍBV með sjö mörk. Ester Óskarsdóttir skoraði sex mörk og Jóna Sigríður Halldórsdóttir fimm.

Sigurlaug Rúnarsdóttir skoraði mest í liði Vals, eða átta mörk. Jónína Líf Ólafsdóttir kom næst með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×