Sport

Eygló Ósk: Mig hefur dreymt um að ná þessu meti í þrjú ár

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir fer á HM50 í Kazan í Rússlandi.
Eygló Ósk Gústafsdóttir fer á HM50 í Kazan í Rússlandi. vísir/valli
„Mér líður alveg geðveikt vel,“ sagði Eygló Ósk Gústafsdóttir í sæluvímu þegar Vísir heyrði í henni rétt í þessu, en sunddrottningin bætti Norðurlandametið í 200 metra baksundi á opna danska meistaramótinu í dag.

Eygló Ósk synti á 2:09,86 mínútum en Norðurlandametið var 2:10,27 mínútur. Íslandsmetið sem hún átti sjálf var 2:10,34 mínútur.

„Mig er búið að dreyma um að ná þessum tíma frá 2012 þegar ég var 10/100 frá metinu en þá var ég 17 ára. Svo var ég 7/100 frá því síðast þegar ég reyndi en nú var ég langt undir tímanum,“ sagði Eygló Ósk, en bjóst hún við þessum árangri?

Eygló Ósk er ein fremsta baksundskona Evrópu.vísir/valli
„Ég er ekki alveg fullhvíld vegna þess að Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug er heima eftir rúam viku þannig ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast. Ég er enn að reyna að trúa þessu.“

Eygló Ósk fór á kostum á ÍM25 í nóvember og heldur áfram að bæta sig eins og sést með þessu Norðurlandameti. Hún kveðst spennt fyrir næstu verkefnum, en Norðurlandametið gildir sem A-lágmark á HM50 í sumar og ÓL 2016.

„Ég er rosalega spennt fyrir sumrinu og HM. Ég ætla mér að komast lengra þar,“ segir Eygló en HM í 50 metra laug fer fram í Kazan í Rússlandi.

„Ég hafði aldrei áhyggjur af þessum lágmörkum. Fyrir síðustu Ólympíuleika var það aðaltakmarkið en nú er ég reyndari og ætla mér lengra. Nú er ég að hugsa um að komast í undanúrslit allavega á HM,“ segir Eygló Ósk Gústafsdóttir.


Tengdar fréttir

Eygló Ósk setti sjö Íslandsmet um helgina

Eygló Ósk Gústafsdóttir átti frábæra helgi á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug en hún setti alls sjö Íslandsmet á keppnisdögunum þremur þar af sex þeirra í einstaklingsgreinum.

Ég kom sjálfri mér alveg rosalega á óvart

Sunddrottningin Eygló Ósk Gústafsdóttir var óumdeild stjarna Íslandsmeistaramótsins í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug um helgina. Eygló vann níu gull og setti sex Íslandsmet. Eitt þeirra hefði komið henni á pall á HM í Istanbúl fyrir tveimur árum

Eygló Ósk blómstrar hjá "nýja“ félaginu

Eygló Ósk Gústafsdóttir, nífaldur Íslandsmeistari í sundi frá helginni, keppti fyrir "nýtt“ félag um helgina. Hún kemur úr Sundfélaginu Ægi, en nú hefur Reykjavíkurfélögunum öllum verið skellt saman undir nafni ÍBR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×