Sport

Eygló Ósk komst ekki í úrslit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eygló verður aftur á ferðinni á miðvikudaginn þegar hún keppir í 50m baksundi.
Eygló verður aftur á ferðinni á miðvikudaginn þegar hún keppir í 50m baksundi. vísir/valli
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir komst ekki í úrslit í 100 metra baksundi á heimsmeistaramótinu í Kazan í Rússlandi í dag.

Eygló varð í 15. sæti af 16 keppendum í undanúrslitunum en átta bestu tímarnir fóru í úrslit.

Eygló synti á 1:00,69 mínútum sem er nokkuð frá Íslandsmetinu sem hún setti í undanrásunum í morgun.

Eygló var með níunda besta tímann í undanrásunum þar sem hún synti á 1:00,25 mínútum. Hún sló ekki einungis Íslandsmetið í morgun heldur náði hún einnig A-lágmarki fyrir Ólympíuleikana í Ríó á næsta ári.

Eygló hefur ekki lokið leik á HM en hún keppir í 50 metra baksundi á miðvikudaginn, 200 metra baksundi á föstudaginn og í 4x100 metra fjórsundi á sunnudaginn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×