Sport

Eygló Ósk í úrslit: Ég er næstum því að fara gráta

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir sér að Íslandsmetið er fallið.
Eygló Ósk Gústafsdóttir sér að Íslandsmetið er fallið. Vísir/Anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir átti erfitt með sig eftir undanúrslitasundið í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt. Hún náði sjöunda besta tímanum, setti nýtt glæsilegt Íslandsmet og komst í úrslit. Stórkostleg frammistaða.

„Ég er næstum því að fara gráta því þetta er svo geðveikt," voru fyrstu orðin sem ég fékk upp úr Eyglóu Ósk Gústafsdóttur eftir sundið sem var frábæralega útfært hjá henni. Hún bætti gamla Íslandsmetið um tuttugu sekúndubrot.

„Ég á eiginlega engin orð núna," sagði Eygló Ósk en hún var þá nýbúin að fylgjast með seinni undanúrslitariðlinum en það kom ekki í ljós fyrr en eftir hann hvort hún væri inni í úrslitum eða ekki.

„Hefði ein önnur verið hraðari þá hefðum við þurft að fara í umsund og synda um það hvor hefði komist áfram," sagði Eygló Ósk en hún kom inn á sama tíma og Rússinn Daria Ustinova. Þær voru hinsvegar númer sjö og átta og komust báðar í úrslitin.

„Ég veit eiginlega ekki hvað ég gerði. Alltaf þegar ég syndi mín bestu sund þá er ég ekki að hugsa og bara geri eitthvað. Það eina sem ég var að hugsa var það að seinustu 50 metrarnir hjá mér í morgun voru of hægir. Nú gaf ég bara allt í botn á seinustu 50 metrunum," sagði Eygló.

„Ég hugsaði bara um það að mér væri alveg sama hvort ég syndi ekki á morgun eða ekki. Ég leit bara á þetta sem seinasta sundið mitt og ætlaði bara að gefa allt í þetta," sagði Eygló.

„Þetta er bara ótrúlegt að ég hafi náð þessu. Það er svo erfitt að hitta nákvæmlega á rétt sund á réttum tíma. Það að þetta hafi gerst er bara geðveikt," sagði Eygló Ósk.

„Komin með Íslandmet og allt. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu," sagði Eygló og það var magnað að fylgjast með henni vera búin að uppskera svona glæsilega á sjálfum Ólympíuleikunum.


Tengdar fréttir

Eygló Ósk í undanúrslit í 200 metra baksundi

Eygló Ósk Gústafsdóttir tryggði sér sæti í undanúrslitum 200 metra baksunds kvenna á Ólympíuleikunum með því að ná tólfta besta tímanum í undanrásum.

Eygló Ósk hás og hóstandi eftir sundið

Eygló Ósk Gústafsdóttir þurfti að hrista af sér smá veikindi þegar hún tryggði sér sæti í undanúrslitum í annað skiptið á Ólympíuleikunum í Ríó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×