Sport

Eygló Ósk fékk brons í 50 metra baksundi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
vísir/valli
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, hafnaði í þriðja sæti og fékk brons í 50 metra baksundi á opna danska meistaramótinu í dag.

Eygló, sem setti nýtt Norðurlandamet í 200 metra baksundi í gær, synti metrana 50 á 29,31 sekúndum.

Alicja Tchorz frá Póllandi fékk gullið á 29,21 sekúndum og Julie Kepp Jensen frá Danmörku hafnaði í öðru sæti á tímanum 29,18 sekúndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×