Sport

Eygló Ósk byrjaði með stæl

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Éygló Ósk kemur í mark í kvöld.
Éygló Ósk kemur í mark í kvöld. vísir/ernir
Íslandsmótið í 25 metra laug hófst í kvöld í Ásvallalaug í Hafnarfirði og íþróttamaður ársins, Eygló Ósk Gústafsdóttir, var þar á ferðinni.

Eygló Ósk rúllaði upp 200 metra baksundinu þar sem hún kom í mark á 2:07,04 mínútum. Það er nokkuð frá Íslandsmeti hennar sem er 2:03,53 mínútur.

Hún var aftur á móti tæpum 13 sekúndum á undan Katarínu Róbertsdóttur sem var önnur.

Önnur úrslit kvöldsins má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×