Sport

Eygló Ósk: Bjóst ekki alveg við því að þetta væri svona hratt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir í sundinu í dag.
Eygló Ósk Gústafsdóttir í sundinu í dag. Vísir/Anton
Eygló Ósk Gústafsdóttir synti örugglega inn í undanúrslit í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó þegar hún varð með tólfta besta tímann í undanrásunum.

Sund Eyglóar Óskar leit vel út og hún var ekki langt frá Íslandsmetinu sínu. Samkeppnin verður hörð um sæti í úrslitunum en þar þarf Eygló að hækka sig um þrjú sæti.

„Mér leið vel og ég bjóst ekki við því að ég hefði farið á þessum tíma því mér leið ekki þannig," sagði Eygló og hló að klaufalegu orðalagi blaðamanns að þetta hafi verið afslappað.

„Þetta sund er aldrei afslappað. Það er aldrei létt að synda þetta sund sama hvað þú gerir," sagði Eygló.

„Mér leið það vel í vatninu að ég bjóst ekki alveg við því að þetta væri svona hratt. Það er bara gott því ég hefði ekki getað farið mikið hægar," sagði Eygló.

„Mér líður vel fyrir kvöldið. Vonandi get ég farið hraðar í kvöld og reyna að halda í við þessar risastóru stelpur þarna," sagði Eygló Ósk en ekkert nema Íslandsmet mun koma henni í undanúrslitin.

„Þetta eru rosalega sterk grein og það eru svo margar öflugar stelpur sem eru í þessu. Þetta er mikið sterkara en þetta var í fyrra," sagði Eygló og vísaði þá í 200 metra baksundið á HM í Kazan.

„Ég var að fara á svipuðum tíma í morgunhlutanum í fyrra á HM í Kazan en var þá fjórða inn í undanúrsltuum á þá svipuðum en aðeins hraðari tíma. Þetta er alveg fáránlega hratt," sagði Eygló.

„Ég sá stelpuna við hliðina á mér og vissi það að hún er það góð að ef ég væri á undan henni þá ætti ég að vera á góðum stað," sagði Eygló.

„Ég ákvað að vera ekkert að reyna að sprengja mig síðustu 50 metrana," sagði Eygló en hún missti þá þrjár framúr sér. Sætið í undanúrslitunum var samt aldrei í hættu.

„Þetta er líka mikið sterkara en þetta var á Ólympíuleikunum fyrir fjórum árum síðan," sagði Eygló en gott dæmi um það er að bandaríski Ólympíumeistarinn og heimsmethafinn, Missy Franklin, var bara með ellefta besta tímann í undanrásunum og því í næsta sæti á undan Eyglóu.

Eygló Ósk Gústafsdóttir syndir í undanúrslitunum klukkan 22.35 í kvöld eða klukkan 1.35 að íslenskum tíma.


Tengdar fréttir

Eygló Ósk í undanúrslit í 200 metra baksundi

Eygló Ósk Gústafsdóttir tryggði sér sæti í undanúrslitum 200 metra baksunds kvenna á Ólympíuleikunum með því að ná tólfta besta tímanum í undanrásum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×