Sport

Eygló kórónaði daginn sinn á HM í Windsor með þriðja metinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Eygló Ósk Gústafsdóttir. Vísir/Getty
Uppskeran hjá Íþróttamanni ársins, Eygló Ósk Gústafsdóttur, á HM í 25 metra laug í Windsor í Kanada í dag var afar glæsileg.  

Eygló Ósk Gústafsdóttir setti sjálf Íslandsmet í 50 metra baksundi í fyrsta spretti í 4 x 50 metra boðssundi kvenna en hún hjálpaði einnig tveimur boðssundsveitum að setja landsmet.

Eygló Ósk byrjaði á því að setja landsmet með kvennasveitinni í 4x50 metra fjórsundi en hún var ekki hætt. Seinna um daginn synti hún einnig með blönduðu íslensku sveitinni.

Boðsundssveitin í blönduðum flokki varð í sjöunda sæti í sínum riðli og í sextánda sæti í greininni af 31 sveitum í 4x50 metra skriðsundi.  Átta efstu þjóðir í boðsundum komast í úrslitariðla.

Íslenska sveitin var skipuð þeim Aroni Erni Stefánssyni, Davíð Hildiberg Aðalsteinssyni, Eygló Ósk Gústafsdóttur og Jóhönnu Gerðu Gústafsdóttur. Þau syntu í öðrum riðli af 4.

Ekkert landsmet var skráð í greininni fyrir sundið þannig að tíminn þeirra 1:36,70 mínútur er sjálfkrafa nýtt met. Hins vegar er Íslandsmetið 1:38,63 sem sveit Reykjavíkur á sett á ÍM25 2014. Þá voru í sveitinni þau Alexander Jóhannesson, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Kristinn Þórarinsson og Inga Elín Cryer.

Munurinn á Íslandsmeti og landsmeti er einfaldast að útskýra þannig að landsmet eru sett þegar saman kemur sundfólk í landsliðsverkefnum en Íslandsmet eru sett af sundfólki úr sama sundfélagi.


Tengdar fréttir

Annað Íslandsmet hjá Hrafnhildi

Hrafnhildur Lúthersdóttir bætti Íslandsmetið í 50 metra bringusundi öðru sinni á HM í 25 metra laug í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×