Lífið

Eyðslusemin kostaði Carey kallinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Carey og Packer á góðri stundu.
Carey og Packer á góðri stundu.
James Packer og Mariah Carey eru hætt saman og segja erlendir slúðurmiðlar að ástæðan sé að Packer hafi fengið nóg af óhóflegri eyðslu söngkonunnar.

Auðkýfingurinn James Packer er einn ríkasti maðurinn í Ástralíu en þau trúlofuðu sig í byrjun þessa árs. Þá gaf Packer Carey hring sem kostaði hann 10 milljónir dollara.

Packer er 48 ára og Mariah Carey er 46 ára en hún var áður gift rapparanum Nick Cannon og eiga þau tvíbura saman.  

James Packer mun einnig hafa verið óánægður með þau áform söngkonunnar að byrja með sinn eigin raunveruleikaþátt, Mariah's World.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×