Lífið

Eyddi fertugsafmælinu með bóndanum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kryddpían og fatahönnuðurinn Victoria Beckham fagnaði fertugsafmæli sínu í gær.

Hún eyddi deginum með eiginmanni sínum, David Beckham, og börnunum þeirra fjórum - Brooklyn, fjórtán ára, Romeo, ellefu ára, Cruz, átta ára og Harper, tveggja ára.

Victoria deildi mynd af sér og bónda sínum á Twitter og skrifaði einfaldlega:

„Á yndislegan dag með fjölskyldunni x vb.“ Fjölskyldan dvaldi í Grand Canyon í Bandaríkjunum og fór meðal annars í fjallgöngu. Um kvöldið borðuðu þau síðan kvöldmat á heimsfræga veitingastaðnum Nobu.

Victoria og David hafa verið gift í fjórtán ár en enn eru tvö ár í það að David fagni sínu fertugsafmæli.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×