Viðskipti erlent

Eyða 42 milljörðum í hrekkjavökubúninga á gæludýrin sín

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Ótrúlegt en satt þá kemst þessi búningur ekki á topplistann.
Ótrúlegt en satt þá kemst þessi búningur ekki á topplistann.
Bandaríkjamenn klæða ekki bara sjálfa sig upp í tilefni af hrekkjavökunni heldur gæludýrin sín líka, eins og fjallað var um á Vísi í gær. Áætlað er að gæludýraeigendur vestanhafs muni punga út 350 milljónum dala, jafnvirði 42 milljarða króna, fyrir krúttlega búninga fyrir dýrin sín. VOX fjallar um málið í dag.

Samtök smásöluverslana í Bandaríkjunum hafa tekið saman upplýsingar um áætlaða sölu á slíkum búningum en þar kemur fram að reiknað sé með að 23 milljónir Bandaríkjamanna muni klæða dýrin sín upp næstkomandi föstudag, þegar hrekkjavakan fer fram.

Samkvæmt lista sem samtökin hafa tekið saman yfir vinsælustu hrekkjavökubúningana fyrir dýr er vinsælast að klæða dýr upp sem grasker. Næstvinsælast er að setja þá í pylsubúning og síðan djöflabúninga. Sjá má lista yfir vinsælustu dýrabúningana hér fyrir neðan:

1. Grasker

2. Pylsa

3. Djöfullinn

4. Býfluga

5. Köttur

6. Persóna úr Batman

7. Súperman

8. Norn

9.–10. Draugur, sjóræningi

11. Persóna úr Stjörnustríðsmyndunum


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×