Innlent

Eyborg siglir með 21 laumufarþega

Ung kona mun hafa látið lífið áður en skipverjar urðu varir við fólkið.
Ung kona mun hafa látið lífið áður en skipverjar urðu varir við fólkið.

Togarinn Eyborg er á leið til Möltu með tuttugu og einn laumufarþega sem fannst á flotkvíum skipsins á miðvikudagsmorgun á alþjóðlegu hafsvæði á Miðjarðarhafi. Í hópnum eru átján karlmenn og þrjár konur og eru þau talin vera frá Norður-Afríku. Eyborgin er rækjutogari frá Hrísey sem er skráð í Litháen en hefur verið í verkefnum á Miðjarðarhafinu undanfarin tvö ár. Skipstjóri togarans er íslenskur en auk hans eru tveir Rúmenar og sex Indónesíumenn í áhöfninni.



Birgir Sigurjónsson, útgerðarmaður og eigandi Eyborgarinnar, sagðist í samtali við Fréttablaðið lítið vilja tjá sig um málið enda hefði hann allar sínar upplýsingar frá fjölmiðlum. „Ég vænti þess þó að heyra í skipstjóranum enda góður vinnufélagi minn,“ segir Birgir.



Samkvæmt fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu brýndi ráðuneytið fyrir útgerðinni og skipstjóranum að veita fólkinu alla nauðsynlega neyðarhjálp. Utanríkisráðuneytið tilkynnti Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um málið sem hefur haft samband við svæðisskrifstofur sínar á Möltu og Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×