Sport

Expendables-stjarna býðst til að hjálpa Ali

Couture er hér með Dolph Lundgren, meðleikara sínum í Expendables-myndunum.
Couture er hér með Dolph Lundgren, meðleikara sínum í Expendables-myndunum. vísir/getty
Ef Laila Ali lætur af því verða að berjast við Rondu Rousey þá fær hún góða aðstoð.

Kvikmyndaleikarinn og UFC-goðsögnin Randy Couture hefur boðist til þess að aðstoða Lailu Ali ef hún ætlar í alvörunni að berjast við Rondu Rousey.

Ali er fyrrverandi hnefaleikakona sem hætti eftir að hafa unnið alla 24 bardaga sína.

„Hún þarf ekki hnefaleikaþjálfara heldur wrestling-þjálfara. Ronda mun aldrei boxa við hana heldur skella henni í gólfið og rífa af henni handlegginn eins og hún gerir við alla andstæðinga sína," sagði Couture.

„Ali er frábær íþróttamaður sem ég ber mikla virðingu fyrir. Ég myndi hjálpa henni. Ekki spurning."

Spurning hvað Ronda segir við þessu en hún lék með Couture í Expendables 3.

MMA

Tengdar fréttir

Ronda til í að lemja dóttur Ali

Það skora allir á Rondu Rousey þessa dagana. Bæði menn og konur. Ronda nennir nú ekki að svara hverjum sem er en hún svaraði dóttur Muhammad Ali.

Dóttir Muhammad Ali: Ég myndi vinna Rondu Rousey

Ronda Rousey er algjörlega óstöðvandi í hringnum þessa dagana en það er þó ein heimsfræg bardagakona sem treystir sér að vinna hana. Það er reyndar einn hængur á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×