Erlent

Exodus bönnuð í Egyptalandi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Christian Bale fer með hlutverk Móses í myndinni.
Christian Bale fer með hlutverk Móses í myndinni. mynd/wire images
Egypsk stjórnvöld hafa bannað sýningu á kvikmyndinni Exodus: Gods and Kings. Frjálslega þykir farið með heimildir í myndinni. Sömu sögu er að segja af afdrifum sýninga í Marokkó.

Myndin byggir á annarri Mósebók og segir frá því hvernig gyðingar reistu pýramídana, plágum þeim er herjuðu á Egyptaland og flótta gyðinga frá landinu undir leiðsögn Móses. Meðal annars er sýnt er hann klýfur Rauðahafið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×