Exista tapaði fimm milljörðum á fyrsta ársfjórðungi 29. apríl 2008 16:19 Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir. MYND/GVA
Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista tapaði um fimm milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samkvæmt tilkynningu sem birt er á heimasíðu Kauphallar Íslands. Þá er miðað við gengi dagsins í dag. Þar segir einnig að hagnaður af fjármálaþjónustu eftir skatta hafi numið 7,7 milljörðum króna en tap af fjárfestingum hafi numið 12,7 milljörðum. Heildareignir félagsins reyndust 851 milljarði við lok fyrsta ársfjórðungs og minnkuðu um átta prósent frá áramótum. Eigið fé er 264 milljarðar og minnkaði um 1,5 prósent. Hins vegar lækkuðu heildarskuldir Existu um nærri ellefu prósent á tímabilinu. Þá kemur einnig fram í tilkynningunni að félagið eigi nægilegt lausafé til að mæta endurfjármögnun til desember 2009. Sátt við niðurstöðuna „Við erum sátt við útkomu Exista úr ársfjórðungi sem reynst hefur fyrirtækjum í fjármálaþjónustu sérlega erfiður. Þrátt fyrir neikvæða afkomu, þá hefur Exista staðið vörð um sterkar fjárhagslegar undirstöður, öfluga lausafjárstöðu og framúrskarandi eignir. Við höfum hagað starfsemi Exista, kostnaðaraðhaldi og áhættustýringu með þeim hætti að tekist hefur að tryggja fjárhagsstyrk og lausafé félagsins á tímum umróts á alþjóðamörkuðum. Samhliða höfum við tekið mikilvæg skref við að skapa ný sóknarfæri, svo sem með kaupum á Skiptum. Ítök Exista í fjármálaþjónustu á Norðurlöndum halda áfram að aukast og skapa félaginu spennandi möguleika til framtíðar," segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, í tilkynningunni.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira