Fótbolti

Evrópumeistararnir sluppu með skrekkinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo jafnaði metin þegar mínúta var til leiksloka.
Ronaldo jafnaði metin þegar mínúta var til leiksloka. vísir/getty
Real Madrid slapp með skrekkinn þegar Sporting frá Lissabon kom í heimsókn í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Þegar mínúta var til leiksloka var staðan 0-1, Sporting í vil. Bruno César skoraði markið á 48. mínútu og það virtist ætla að duga til sigurs gegn Evrópumeisturunum.

En Cristiano Ronaldo var ekki tilbúinn að sætta sig við tap gegn uppeldisfélaginu og hann jafnaði metin í 1-1 með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu á 89. mínútu.

Real Madrid-menn voru ekki hættir og þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skallaði Álvaro Morata boltann í netið eftir fyrirgjöf James Rodríguez og tryggði Evrópumeisturunum stigin þrjú.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×