Fótbolti

Evrópuland má ekki halda HM í fótbolta 2026

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Philipp Lahm og Þjóðverjar eru ríkjandi heimsmeistarar.
Philipp Lahm og Þjóðverjar eru ríkjandi heimsmeistarar. Vísir/Getty
Heimsmeistarakeppnin í fótbolta eftir tíu ár fer ekki fram í Evrópu. Það er þegar ljóst þótt að engin lönd hafi sent inn umsögn um að halda þessa keppni og FIFA sé heldur ekki búið að ákveða fyrirkomulag keppninnar.

Ástæðan er að FIFA hefur ákveðið að álfurnar skiptist á að halda heimsmeistarakeppnina sem fer fram á fjögurra ára fresti.

Evrópa (Rússland 2018) og Asía (Katar 2022) halda næstu tvær heimsmeistarakeppnir og því fer heimsmeistarakeppnin ekki fram í þessum tveimur álfum árum 2026.

Heimsmeistarakeppnin fór fram í Brasilíu 2014 og í Suður-Afríku 2010. Það má teljast líklegast að keppnin fari fram í Ameríku eftir áratug þó að Afríka og Eyjaálfa komi vissulega líka til greina.

FIFA er enn að skoða mögulegar breytingar á fyrirkomulagi keppninnar og hefur stjórn sambandsins nú lagt fram tillögur um að fjölga úr 32 þátttökuþjóðum upp í annaðhvort 40 eða 48 þjóðir.  Leikirnir verða þá annaðhvort 72 eða 80 en þeir eru 64 í dag og voru „aðeins“ 52 á HM 1994.

Tillögurnar verða teknar formlega fyrir 9. janúar 2017 næstkomandi en Gianni Infantino, nýr forseti FIFA, ætlar að berjast fyrir því að fjölga þjóðum í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta.

Það var líka að heyra á Gianni Infantino eftir fundi stjórnar FIFA síðustu tvo daga að hann hafi fengið góð viðbrögð við tillögum sínum um fjölgun liða á HM. Margir knattspyrnuþjálfarar og fleiri úr knattspyrnuheiminum telja það hinsvegar út í hött að stækka keppnina enn frekar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×