Evrópuhörmung Everton heldur áfram

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Wayne Rooney og félagar eiga enn eftir að vinna leik.
Wayne Rooney og félagar eiga enn eftir að vinna leik. vísir/getty
Það kallast varla frétt lengur þegar að Everton tapar fótboltaleik en það gerði liðið enn eina ferðina í kvöld.

Everton tapaði að þessu sinni fyrir Atalanta frá Ítalíu, 5-1, í fimmtu og næst síðustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Ítalski framherjinn Bryan Cristante kom Atalanta í 2-0 en þar á milli hafði Alejandro Gomez látið verja frá sér vítaspyrnu.

Sandro Ramirez minnkaði muninn fyrir Everton á 71. mínútu en gestirnir komust í 3-1 með marki Robin Gosens á 86. mínútu. Danski framherjinn Andreas Cornelius skoraði svo tvívegis undir lokin og innsiglaði stórsigur Atalanta, 5-1.

Everton er enn án sigurs eftir fimm leiki í Evrópudeildinni en það átti ekki möguleika á að komast áfram í kvöld og var Gylfi Þór Sigurðsson ekki í leikmannahópnum.

Enska liðið getur aðeins bjargað andliti í lokaumferðinni og kannski unnið einn Evrópusigur en það mætir Apollon Limassol frá Kýpur á útivelli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira