Fótbolti

Evra aftur til Frakklands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Evra hefur leikið 81 landsleik fyrir Frakkland.
Evra hefur leikið 81 landsleik fyrir Frakkland. vísir/epa
Patrica Evra er genginn í raðir Marseille frá Juventus.

Evra, sem er 35 ára, átti ekki fast sæti í liði Juventus í vetur og var m.a. orðaður við endurkomu til Manchester United.

Bakvörðurinn öflugi endaði hins vegar hjá Marseille sem er í 7. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar. Evra skrifaði undir eins og hálfs árs samning við félagið.

Evra lék með United frá 2006 til 2014. Á þeim tíma varð hann fimm sinnum enskur meistari og vann Meistaradeildina 2008.

Evra fór svo til Juventus sumarið 2014 og varð tvívegis tvöfaldur meistari með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×