Fótbolti

Evra: Tevez er með United-blóð eins og ég

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Patrice Evra fagnar hér með félögum sínum í kvöld.
Patrice Evra fagnar hér með félögum sínum í kvöld. Vísir/Getty
Patrice Evra, bakvörður Juventus, var ánægður eftir 2-1 sigur liðsins á Real Madrid í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

„Það mikilvægasta var að vinna leikinn. Það er aldrei auðvelt að spila á móti Real Madrid og ég er mjög stoltur af mínu liði og öllum starfsmönnum þess," sagði Patrice Evra við BBC.

„Við undirbjuggum okkur mjög vel og náðum að vinna leikinn. Við höfum trú á þessu hjá okkur. Þetta var vel gert og við erum búnir að klára fimmtíu prósent af verkefninu," sagði Evra.

„Það bjóst enginn við því að við kæmumst svona langt og það eru tólf ár síðan við vorum hérna síðast," sagði Evra en Juventus lék síðast til úrslita í Meistaradeildinni árið 2003.

Carlos Tevez gerði út um leikinn með því að skora sigurmarkið úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur.

„Carlos Tevez er með United-blóð eins og ég sjálfur. Hann er sigurvegari. Hann hefur átt frábært tímabil og við viljum vinna Meistaradeildina saman. Hann er algjör fagmaður," sagði Patrice Evra en hann og Carlos Tevez unnu Meistaradeildina saman með Manchester United árið 2008.




Tengdar fréttir

Tévez tryggði Juve sigur á Real Madrid | Sjáið mörkin

Ítölsku meistararnir í Juventus unnu 2-1 sigur á Evrópumeisturum Real Madrid fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta en seinni leikurinn fer fram á heimavelli Real Madrid í næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×