Enski boltinn

Everton rúllaði yfir City

Stefán Árni Pálsson skrifar
Romelu Lukaku fagnar marki sínu.
Romelu Lukaku fagnar marki sínu. vísir/getty
Everton gerði sér lítið fyrir og vann auðveldan sigur á Manchester City, 4-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikurinn fór fram á Goodison Park.

Romelu Lukaku skoraði fyrsta mark leiksins eftur rúmlega hálftíma leik og kom heimamönnum á bragðið.

Staðan var 1-0 í hálfleik en það var Kevin Mirallas sem skoraði annað mark leiksins á 47. mínútu. 

Tom Davies skoraði þriðja mark leiksins á 79. mínútu og síðan gerði Ademola Lookman fjórða mark Everton í dag og innsiglaði ótrúlegan sigur Everton. 

Everton er í sjöunda sæti deildarinnar með 33 stig en City í því fimmta með 42 stig. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×