Enski boltinn

Everton að undirbúa 25 milljón punda tilboð í Gylfa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér marki sínu á EM í Frakklandi.
Gylfi Þór Sigurðsson fagnar hér marki sínu á EM í Frakklandi. Vísir/EPA
Ronald Koeman nýr knattspyrnustjóri Everton vill fá íslenska landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson til liðsins fyrir komandi tímabil.

Telegraph slær því upp í kvöld að Everton ætli að bjóða 25 milljónir punda í Gylfa sem hefur spilað með Swansea City undanfarin tvö tímabil.

Steve Walsh, hefur tekið við stöðu yfirmanns knattspyrnumála á Goodison Park en hann er maðurinn sem var áður njósnari hjá Leicester City og fann menn eins og Jamie Vardy, Riyad Mahrez og N’Golo Kante.

Allir voru þeir lykilmenn á bak við sigur Leicester City í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.  

Telegraph segir að Steve Walsh leggi áherslu á það að fá Gylfa og það er greinilegt að hann sér eitthvað í Íslendingnum.

Ronald Koeman hefur líka viljað fá Gylfa til sín áður og samkvæmt frétt Telegraph ætla þeir Koeman og Walsh að gera kaupin á Gylfa að forgangsmáli á félagsskiptamarkaðnum í haust.

Swansee keypti Gylfa á rúmlega átta milljónir punda haustið 2014 og gæti því hagnast verulega á því að selja hann fyrir þennan pening. Gylfi er hinsvegar lykilmaður liðsins og átti einna mestan þátt í því að liðið bjargað sér frá falli úr deildinni á síðustu leiktíð.

Gylfi er einn af fjölmörgum leikmönnum íslenska landsliðsins sem vöktu mikla athygli með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi. Gylfi kom inn í Evrópukeppnina eftir frábæran seinni hluta tímabilsins þar sem hann skoraði 9 mörk í ensku úrvalsdeildinni eftir áramót.

Þetta var fimmta tímabil Gylfa í ensku úrvalsdeildinni en hann spilaði einnig hálft tímabil á láni með Swansea 2012 og var síðan í tvö tímabil hjá Tottenham.

Verði Gylfa Þór Sigurðsson keyptur á þessa risastóru upphæð verður hann langdýrasti íslenski knattspyrnumaðurinn. 25 milljónir punda eru meira en fjórir milljarðar í íslenskum krónum.






Tengdar fréttir

Gylfi: Gleymum þessum vikum aldrei

"Þetta er erfitt. Við erum mjög svekktir með það hvernig við byrjuðum leikinn en ég held að Frakkarnir hafi verið of góðir fyrir okkur,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson svekktur eftir tapið gegn Frakklandi í kvöld.

Gylfi: Stuðningurinn heldur okkur gangandi

Gylfi Þór Sigurðsson lék sinn besta leik á EM 2016 þegar Ísland vann England með tveimur mörkum gegn einu í lokaleik 16-liða úrslitanna í Nice í kvöld.

Gylfi segist vera betri kylfingur en Harry Kane

Gylfi Þór Sigurðsson mætir sínum gamla félaga hjá Tottenham Hotspur, Harry Kane, þegar Ísland og England eigast við í Nice í 16-liða úrslitum EM 2016 á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×