Íslenski boltinn

Everson semur við KA

Bjarni Jóhannsson, þjálfari KA, heldur áfram að sanka að sér mönnum.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari KA, heldur áfram að sanka að sér mönnum. vísir/stefán
KA-menn halda áfram að safna liði í 1. deildinni og hafa nú fengið enn einn leikmanninn.

Nú er liðið búið að semja við enska framherjann Ben Everson en hann hefur spilað með Blikum, Tindastóli og BÍ hér á landi. Hann var á mála hjá liði í Svíþjóð á síðustu leiktíð.

Þessi 27 ára strákur hefur sannað sig hér á landi og er líklegur til afreka fyrir norðan.

KA hefur einnig fengið Elfar Árna Aðalsteinsson frá Blikum, Juraj Grizelj frá Grindavík og Halldór Hermann Jónsson frá Val sem og fleiri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×