Lífið

Eva Mendes ólétt

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikkonan Eva Mendes og leikarinn Ryan Gosling eiga von á sínu fyrsta barni saman samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

Heimildarmaður blaðsins segir að Eva sé komin sjö mánuði á leið en sögusagnir um óléttuna fóru á kreik í gærdag.

Eva, 40 ára, og Ryan, 33 ára, hafa verið saman síðan haustið 2011 og eiga þau engin börn fyrir.

Eva hló að kjaftasögum um að hún væri ólétt fyrr á árinu í þætti Ellen DeGeneres.

"Þetta er svo fáránlegt. Þetta byrjaði allt því ég vildi ekki fara í gegnum öryggisskanna á flugvellinum. Þið vitið, röntgenskannar sem eru mjög óhugnalegir? Þá sést maður nakinn er það ekki? Og ekki bara það. Þetta er líka spurning um geislun þannig að ég vil aldrei fara í svona skanna," sagði leikkonan á léttum nótum.

Ryan lenti líka í klóm kjaftasagna á árinu þegar Facebook-síða í hans nafni en ekki á hans vegum birti færslu um að leikarinn hefði ætleidd lítinn dreng.

Ryan og Eva eyddu talsverðum tíma hér á landi í fyrra þegar Ryan var að klippa myndina Lost River ásamt Valdísi Óskarsdóttur en myndin er sú fyrsta sem leikarinn leikstýrir.


Tengdar fréttir

Ryan Gosling farinn af landi brott

Leikarinn Ryan Gosling er farinn af landi brott en hann hefur verið hér á landi að klippa kvikmynd sína How To Catch A Monster með Valdísi Óskarsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×