Lífið

Eva Laufey leitar að börnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Laufey ætlar að vinna kokkaþátt með börnum.
Eva Laufey ætlar að vinna kokkaþátt með börnum. vísir
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir kokkur leitar að þremur til fjórum krökkum fyrir upptökur á matreiðsluþáttum fyrir börn og unglinga. Í þáttunum, sem sýndir verða á Stöð 2, eldar hún með krökkum sem eiga það sameiginlegt að hafa áhuga á matargerð.

„Ég er komin með nokkra hressa krakka en vantar þrjá til fjóra í viðbót,“ segir Eva Laufey. Upptökur fara fram um komandi helgi.

Áhugasamir geta sent tölvupóst á netfangið Evalaufey@stöð2.is

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×