Matur

Eva Laufey býður áhorfendum í fyrsta skipti heim til sín

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þættir Evu byrja í apríl á Stöð 2.
Þættir Evu byrja í apríl á Stöð 2. myndir/eva laufey
Í eldhúsi Evu eru nýir þættir sem hefja göngu sína á Stöð 2 í apríl. Í þáttunum heimsækir Eva meðal annars veitingahús á Íslandi og lærir samhliða áhorfendum að elda og baka af listakokkum.

Eva býður áhorfendum einnig heim í eldhúsið sitt en þetta er í fyrsta sinn sem Eva Laufey tekur upp þætti í eldhúsinu sínu og eldar einfalda, fljótlega og bragðgóða rétti fyrir alla fjölskylduna.

Eva er dugleg að birta myndir af réttunum sem verða í þáttunum þessa dagana á Instagram reikning sínum og geta áhugasamir fylgst með á evalaufeykjaran á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×