Matur

Eva Laufey bakar gómsætar makkarónur

Matarvísir skrifar
visir.is/EVALAUFEY
Franskar makkarónur

Matargleði Evu var undir frönskum áhrifum í síðasta þætti og bakaði Eva meðal annars þessar makkarónur sem gleðja bæði augað og bragðlaukana. 

Makkarónur

125 g möndlumjöl

125 flórsykur

40 g eggjahvítur

matarlitur að eigin vali

40 g eggjahvítur

110 g sykur

2 msk vatn

Aðferð:

Sjóðið saman 110 g af sykri og 2 msk af vatni þar til sírópið hefur náð 110°C hita. Notið kjöthitamæli til þess að mæla hitastigið. Þeytið 40 g eggjahvítum og bætið sírópinu út í og hrærið í hrærivél þar til marensinn hefur kólnað. Marensinn er klár þegar hann er orðinn stífur og hægt er að hvolfa skálinni án þess að hann hreyfist. 

Sigtið möndlumjöl og flórsykur saman, með því að sigta það saman tryggjum við að mjölið verði eins fínt og best verður á kosið. Blandið 40 g eggjahvítum út í og hrærið vel í eða þar til þetta verður að góðum möndlumassa.

Litagleðin einkennir makkarónur og á þessu stigi bætið þið matarlit út í deigið og blandið vel saman. Í lokin bætið þið marensblöndunni saman við í þremur skömmtum og hrærið vel saman með sleif. 

Hitið ofninn i 110°C. Setjið makkarónudeigið í sprautupoka og sprautið 2 – 3 cm hnappa með jöfnu millibili á pappírsklædda ofnplötu. Skellið plötunni þrisvar sinnum á borðið, með því að gera það þá losum við um loftbólur sem myndast á deiginu. Kökurnar þurfa að standa í 15 – 25  mínútur við stofuhita eða þar til þær verða snertiþurrar.

Bakið kökurnar í 10 – 12 mínútur. Ofnar eru auðvitað misjafnir og það er best að athuga með fremstu kökurnar fyrst, ef þær eru enn fastar við bökunarpappírinn þá þarf að baka þær örlítið lengur.  

Kælið kökurnar áður en þið sprautið kremi á milli botnanna.



Súkkulaðfylling með sjávarsalti 

50 ml rjómi

100 dökkt súkkulaði

2 msk smjör

gróft salt

Aðferð:

Hitið rjóma að suðu, takið pottinn af hitanum og bætið söxuðu súkkulaðinu og smjörinu út í rjómann. Leyfið súkkulaðinu að bráðna í rólegheitum og setjið smá salt í lokin. Setjið kremið í sprautupoka og kælið þar til það verður stíft. Sprautið á milli botnanna. 

Njótið vel. 


Tengdar fréttir

Veisla upp á franska vísu

Frönsk matargerð er með allra vinsælustu í heiminum enda ekki furða þar sem hver rétturinn á eftir öðrum er gómsætari. Eva Laufey eldaði sínar eftirlætis frönsku uppskriftir í þætti sínum Matargleði Evu sem sýndur er á fimmtudögum á Stöð 2.

Amerískar pönnukökur með bláberjasírópi

Brunch eða dögurður eins og það heitir á íslensku er fullkomin máltíð sem sameinar bæði morgunmat og hádegismat. Dögurður nýtur mikilla vinsælda og ekki að ástæðulausu. Það er fátt betra en að byrja daginn með staðgóðum mat í góðra vina hópi og eru þá góm

Laxasteik og laxaborgari með frönskum sætkartöflum

Eva Laufey bauð upp á lax á tvo vegu í þættinum Matargleði á Stöð 2 í gærkvöldi og ættu þessir réttir að henta vel þegar sest er að snæðingi í sólinni. Lax er hollur og góður fiskur sem passar vel hvort heldur sem er á grillið eða beint á pönnuna.

Eva Laufey gerir dýrindis dögurð

Býður upp á amerískar pönnukökur og tilheyrandi. Kartöfluböku með Chorizo pylsum og eggjum, bláberjasíróp, ávaxtaplatta, jógúrt og mímósu.

Sunnudags páskalamb og gómsæt pavlova

Eva Laufey er mörgum kunn úr matreiðsluþáttum sínum Matargleði á Stöð 2. í síðasta þætti eldaði Eva Laufey girnilegt lambalæri með öllu tilheyrandi sem er tilvalið að nostra við um Páskana auk pavlovu í eftirrétt.

Matarmikil fiskiskúpa

Eva Laufey hefur slegið í gegn með nýju þáttaseríunni sinni Matargleði á Stöð 2 Í þættinum í gær bjó hún til gómsæta fiskisúpu.

Humarpizza með klettasalati og geitaostapizza með aspas

Það sem nýtur mikilla vinsælda í mínu eldhúsi á sumrin er pizza. Ég nýt þess að fá góða gesti í mat á sumrin og hvað þá ef við getum setið úti á palli og spjallað fram eftir kvöldi.

Sushi að hætti Evu Laufeyjar

Lax er mikið notaður í japanskri matargerð og þá sérstaklega í sushi. Í síðasta þætti Matargleði Evu bjó hún til einfalda sushi rétti sem allir geta leikið eftir.

Gómsæt skyrkaka Evu Laufeyjar

Skyrkökur eru ómótstæðilegar og það sakar ekki að það tekur enga stund að setja slíka köku saman.

Fljótlegur kjúklingaréttur og súkkulaðimús

Eva Laufey töfraði fram einfalda og fljótlega rétti í þætti sínum Matargleði á Stöð 2 í gærkvöldi. Kjúklingarétturinn er tilvalinn fyrir nútímafjölskyldur á hlaupum. Pestóið í uppskriftinni er einnig hægt að nota á heimabakað brauð eða með öðrum réttum. Súkkulaðimúsin er einföld en gómsæt.

Eplabaka Evu Laufeyjar

Hér kemur uppskrift að ljúffengri eplaböku úr eldhúsinu hennar Evu á Stöð 2.

Gómsætar pitsur á tvo vegu

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir stjórnar gómsætum og girnilegum matreiðsluþáttum á fimmtudagskvöldum á Stöð 2. Í síðasta þætti útbjó hún meðal annars sínar eftirlætispitsur sem henta vel bæði í ofninn og á grillið. Fleiri uppskriftir má finna á vef Matar

Bestu súkkulaðibitakökurnar

Eva Laufey bakaði þessar ómótstæðilegu smákökur í þætti sínu Matargleði Evu á Stöð 2.

Einfalt og gott sushi

Vala Matt fékk að kynnast japanskri matargerð í síðasta þætti Sælkeraheimsreisunnar sem sýndir eru á þriðjudagskvöldum á Stöð 2. Sushi er sennilega eitt það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar minnst er á japanskan mat og í þættinum fékk Vala uppskrift af mjög einföldum sushirétt sem tilvalið er að bera fram í sumar.

Ofnbakaður lax að hætti Evu Laufeyjar

Lax er með því hollara sem við getum í okkur látið og er hann sannkölluð ofurfæða. Hægt er að matreiða lax á marga vegu og er hann sérstaklega bragðgóður þegar hann er bakaður í ofni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×