Enski boltinn

Eva hjólar í Mourinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eva hleypur hér fram hjá Mourinho og inn á völlinn í leiknum örlagaríka gegn Swansea. Það var hennar síðasti leikur á hliðarlínunni hjá Chelsea.
Eva hleypur hér fram hjá Mourinho og inn á völlinn í leiknum örlagaríka gegn Swansea. Það var hennar síðasti leikur á hliðarlínunni hjá Chelsea. vísir/getty
Læknirinn Eva Carneiro ætlar ekki bara í mál við Chelsea því hún ætlar líka að stefna Jose Mourinho, stjóra félagsins.

Mourinho sagði hana vera einfalda og rak hana af bekknum hjá Chelsea eftir leik Chelsea gegn Swansea snemma á leiktíðinni. Hún hljóp þá inn á völlinn til að huga að Eden Hazard og Mourinho trompaðist.

Lögmenn hennar hafa þegar stefnt félaginu fyrir ólögmæta uppsögn og nú ætlar Eva að hjóla beint í Mourinho sem niðurlægði hana. Það var afar umdeilt hvernig Mourinho fór með Carneiro sem var afar vinsæl hjá Chelsea og víðar.

Þetta þýðir að Mourinho mun þurfa að mæta fyrir dómara nema samið verði utan dómstóla.

Lætin í kringum Evu Carneiro voru upphafið að óförum Chelsea á þessari leiktíð því hvorki hefur gengið né rekið hjá félaginu síðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×