Lífið

Eurovision-teymið ekki á leið heim strax

Bjarki Ármannsson skrifar
„Núna er bara kærkomin hvíld,“ segir Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar.
„Núna er bara kærkomin hvíld,“ segir Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar. Vísir/Stefán/Andri Marinó
Eurovision-teymið sem fór út til Vínarborgar fyrir Íslands hönd verður sennilega áfram úti fram á sunnudag, líkt og gert hafði verið ráð fyrir. Sem kunnugt er, komst íslenska atriðið ekki áfram í úrslitakeppnina sem fer fram annað kvöld.

„Þetta eru það fáir dagar sem eftir eru og það kostar það mikið bæði að breyta flugmiðum og hótelgistingu að ég held að við verðum bara hérna,“ segir Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri söngvakeppninnar á Íslandi, sem er með hópnum úti.

Sjá einnig: „Söng af mér rassgatið fyrir hönd Íslendinga“

Hera segir að meðlimum hópsins standi til boða að snúa aftur heim fyrr en að hún viti ekki til þess að neinn ætli sér það. Dagurinn í dag fari í hvíld og frjálsan tíma og svo standi til að fara öll saman á lokakeppnina á morgun.

„Nú getur maður bara horft á í ró og það er ekki sama stressið,“ segir Hera. „Ef við hefðum komist áfram, hefðum við í morgun strax farið upp í höll og það hefðu verið tvö rennsli í dag. Svo rennsli og úrslit á morgun. Þannig að núna er bara kærkomin hvíld.“

Sjá einnig: „Næst sendum við skeggjaða konu“

Hún segir að allir í hópnum séu með miða á keppninna á morgun og aðgangur þeirra baksviðs gildi enn, þó þau verði þá náttúrulega ekki með aðstöðu í tónleikahöllinni.

Á morgunverðarfundi Advania í morgun var Felix Bergsson, kynnir keppninnar, í myndbandsspjalli í beinni frá Austurríki. Sló Felix á létta strengi og sagði í gríni að Eurovision-teymið fengi ekki lengur dagpeninga eftir að Ísland datt úr keppni. Hera vill þó minnst segja um það hvort þau réttindi séu breytt.

„Það er bara samkomulag milli okkar og hópsins,“ segir Hera. „Greiðslur til þeirra eru bara á milli okkar.“

Sjá einnig: María þurfti að vasaklút að halda eftir ræðu Valla Sport

Hópurinn sjálfur, sem er úti á vegum RÚV, telur alls um tuttugu manns. Hera segir að aðstandendur keppenda, sem dvelji ekki á sama hóteli og séu ekki úti á vegum RÚV, séu hátt í þrjátíu til viðbótar.

„Það er bara yndislegt að hafa þau hérna, ég held að það hafi aldrei komið jafn margir aðstandendur með keppendum og núna,“ segir hún. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×