Lífið

Eurovision-stjörnur með stórtónleika í Stokkhólmi

Heldur tónleika Friðrik Ómar Hjörleifsson heldur sína fyrstu tónleika í Stokkhólmi í lok mánaðarins. Jóhanna Guðrún mun koma fram ásamt honum auk tíu manna hljómsveitar.
Heldur tónleika Friðrik Ómar Hjörleifsson heldur sína fyrstu tónleika í Stokkhólmi í lok mánaðarins. Jóhanna Guðrún mun koma fram ásamt honum auk tíu manna hljómsveitar.
Tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar Hjörleifsson heldur tónleika ásamt Jóhönnu Guðrúnu Jónsdóttur hinn 30. mars í Göta Lejon leikhúsinu í Stokkhólmi. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við sendiráð Íslands og ýmsa ferðaaðila í borginni.

Þetta verða fyrstu tónleikarnir sem Friðrik Ómar heldur sjálfur í Svíþjóð og mun hann meðal annars flytja frumsamið efni í bland við þekkta slagara. „Ég er mjög spenntur fyrir þessum tónleikum. Leikhúsið sjálft er yfir hundrað ára gamalt og rosalega fallegt. Það er verið að sýna Rómeó og Júlíu þarna núna og við komum fram í þeirri sviðsmynd þannig þetta verður eitthvað ævintýralegt. Ég verð Rómeó og Jóhanna Guðrún verður Júlía, eða öfugt,“ segir hann og skellir upp úr.

Salurinn tekur alls 1120 manns í sæti og viðurkennir Friðrik Ómar að það verði ærið verkefni að fylla þau öll. „Hér er mjög stórt Íslendingasamfélag og ég vonast auðvitað eftir því að sjá sem flesta Íslendinga á tónleikunum. En þetta er jafnframt kynning á mér og Jöhönnu Guðrúnu og því búumst við einnig við fólki úr tónlistargeiranum hér,“ segir hann. Karl Olgeirsson mun leiða tíu manna hljómsveit sem spilar undir með Friðriki Ómari og samanstendur hún bæði af íslenskum og sænskum tónlistarmönnum. „Það er svolítið púsl að skipuleggja svona tónleika. Maður hefur hangið mikið á Skype undanfarið til að koma þessu öllu saman,“ segir hann og hlær.

Aðspurður segist Friðrik Ómar kunna vel við sig í Stokkhólmi þótt hann segi tónlistarbransann vera harðari þar en heima. „Góðir hlutir gerast hægt. Ég hef í nægu að snúast og ef það eru dauðir tímar notfæri ég þá til að taka upp og undirbúa önnur verkefni,“ segir hann að lokum. Miðasala á tónleikana hefst í lok vikunnar og er hægt að nálgast miða í gegnum www.ticknet.se.

sara@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×