Tónlist

Eurovision-stjarna syngur Nirvana

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Danska Eurovision-stjarnan Emmelie de Forest ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hana setja Nirvana-lagið Smells Like Teen Spirit í sinn búning.

Emmelie bar sigur úr býtum í Eurovision-keppninni árið 2013 í Malmö með lagið Only Teardrops. Hún vinnur nú að sinni annarri sólóplötu sem kemur út í febrúar árið 2015.

Smells Like Teen Spirit er stærsti smellur Nirvana en lagið er að finna á annarri plötu sveitarinnar, Nevermind, sem kom út árið 1991.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×