Fótbolti

Eto'o samdi við Sampdoria

Eto'o fagnar marki með Everton.
Eto'o fagnar marki með Everton. vísir/getty
Framherjinn Samuel Eto'o er farinn frá Everton og aftur í ítalska boltann.

Hann er búinn að semja við Sampdoria og það sem meira er þá samdi hann við félagið til ársins 2018.

Sampa er í 5. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, einum 15 stigum á eftir toppliði Juventus.

Þetta verður í annað sinn sem Eto'o spilar á Ítalíu. Hann fór til Inter árið 2009 og skoraði þá 25 mörk á tveimur árum.

Eto'o er orðinn 33 ára gamall og hefur fjórum sinnum verið valinn besti knattspyrnumaður Afríku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×