Lífið

Ester fékk eftirsóttasta bíl landsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ester með Reyni og Árna.
Ester með Reyni og Árna. vísir
Þeir Reynir Örn Gunnarsson og Árni Rúnarsson afhentu eftirsóttasta bíl landsins í gær en það var hún Ester Vilhelmsdóttir sem vann Toyota Yaris í Facebook-leik Aðalbíla.

Þeir félagarnir stofnuðu fyrirtækið fyrir tveimur mánuðum og tóku þá ákvörðun að gefa Yaris. Um 18.000 manns like-uðu stöðufærsluna frá Aðalbílum og sló leikurinn rækilega í gegn á samfélagsmiðlinum hér á landi.

Vinningshafinn var kynntur til sögunnar í morgunþættinum Brennslan á FM957 og var hringt í Ester í beinni útsendingu fyrir einni viku síðan. Hún er búsett á Akureyri og mætti í höfuðborgina í gær til að fá Yaris-inn afhentan. Ester var virkilega ánægð með bílinn og á meðfylgjandi mynd má sjá vinningshafann og þá Reyni og Árna.

Brennslan hringdi í Ester





Fleiri fréttir

Sjá meira


×