Fótbolti

Esbjerg vann Íslendingaslaginn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson er fyrirliði Esbjerg.
Guðlaugur Victor Pálsson er fyrirliði Esbjerg. vísir/getty
Randers tapaði fjórða leiknum í röð þegar liðið fékk Esbjerg í heimsókn í 21. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Lokatölur 0-2, Esbjerg í vil.

Guðlaugur Victor Pálsson var að venju í byrjunarliði Esbjerg og lék allan leikinn. Liðið hefur rétt úr kútnum að undanförnu og er komið upp í 12. sæti deildarinnar eftir að hafa fengið átta stig í síðustu fjórum leikjum sínum.

Hannes Þór Halldórsson stóð í marki Randers sem hefur ekki skorað í þremur síðustu leikjum sínum.

Ólafur Kristjánsson er þjálfari Randers sem er í 4. sæti deildarinnar með 32 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×