ESB undirbýr refsiaðgerðir gegn Sýrlandi

Fréttablaðið Erlent 09. febrúar 2012 06:45
Á hverjum degi eru borin til grafar karlar, konur og börn sem látist hafa af völdum árása stjórnarhersins.
Á hverjum degi eru borin til grafar karlar, konur og börn sem látist hafa af völdum árása stjórnarhersins. Fréttablaðið/AP
Rússar vilja reyna að koma á viðræðum milli stjórnar og uppreisnarmanna í Sýrlandi. Nýjar refsiaðgerðir gegn Sýrlandsstjórn eru í smíðum.

Evrópusambandið hyggst herða refsiaðgerðir gegn Sýrlandi. Rússar reyna hins vegar að koma á sáttaviðræðum milli varaforseta landsins og uppreisnarmanna.

Harðar loftárásir stjórnarhersins á borgina Homs héldu áfram í gær og kostuðu tugi manns lífið, að sögn uppreisnarmanna sem hafa komið sér upp hersveitum, að hluta skipuðum liðhlaupum úr stjórnarhernum.

„Í beggja röðum eru menn sem stefna að vopnuðum átökum, ekki samræðum,“ sagði Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sem hitti Bashar al-Assad Sýrlandsforseta í Damaskus á þriðjudag.

Lavrov sagði bæði stjórnvöld og uppreisnarmenn eiga sök á átökunum, sem samkvæmt samantekt Sameinuðu þjóðanna hafa kostað hátt á sjötta þúsund manns lífið undanfarna mánuði.

Lavrov var kominn aftur til Moskvu í gær og sagði þar að Farouk al-Sharra, varaforseti Sýrlands, hafi fengið það hlutverk að ræða við fulltrúa uppreisnarmanna, ef rússneskum stjórnvöldum tekst að koma á slíkum viðræðum.

Bandaríkin og fleiri Vesturlönd hafa harðlega gagnrýnt ákvörðun Rússa og Kínverja um að beita neitunarvaldi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrr í vikunni, þegar þar var til afgreiðslu ályktun sem beint var gegn Assad forseta og stjórn hans.

Vladimír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, sagði hins vegar í gær að utanaðkomandi öfl eigi að láta Sýrlendinga um að leysa ágreininginn sín á milli, án afskipta annarra.

„Við eigum ekki að haga okkur eins og naut í postulínsbúð,“ sagði Pútín.

Embættismenn Evrópusambandsins segja hins vegar að nýju refsiaðgerðirnar eigi að veikja stöðu Sýrlandsstjórnar. Til greina komi að banna flug milli Sýrlands og Evrópuríkja og banna viðskipti við Seðlabanka Sýrlands.

Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, hvatti þjóðir heims til að grípa strax til aðgerða til að stöðva blóðbaðið í Sýrlandi.

Ástandið er langverst í Homs, sem er þriðja stærsta borg landsins. Þar hafa uppreisnarmenn verið einna öflugastir allt frá því mótmælin gegn Assad og stjórn hans hófust snemma á síðasta ári.
gudsteinn@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 24. maí. 2012 15:56

Fellibylurinn Bud færist nær Mexíkó

Fellibylurinn Bud færist nú nær ströndum Mexíkó en hann er fyrsti fellibylur ársins á Kyrr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:59

Nektarmynd af forsetanum harðlega gagnrýnd

Afríska þjóðarráðið, stærsti stjórnmálaflokkur Suður Afríku og flokkur forsetans Jakobs Zu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 10:28

Neitaði að fljúga með kvenkyns flugstjóra

Karlmanni var vísað út úr flugvél á vegum brasilíska flugfélagsins Trip Airlines eftir að ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:15

Dönsk sveitarfélög banna reykingar í vinnunni

Starfsmenn hins opinbera í Danmörku sem reykja eiga nú undir högg að sækja. Fjögur sveitar...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:13

Dæmdur í langa fangelsisvist

Shakil Afridi, læknir i Pakistan, hefur hlotið þungan fangelsisdóm og fésekt að auki fyrir...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 12:02

Plastpokar bannaðir í Los Angeles

Borgarstjórn Los Angeles borgar hefur ákveðið að banna alfarið notkun plastpoka í verslunu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:55

Ólympíuleikar 2020: Þrjár borgir koma til greina

Þrjár borgir eru eftir í baráttunni um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2020. Ekki er rá...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:06

Góð þátttaka í Egyptalandi

Forsetakosningarnar í Egyptalandi fara nú fram annan daginn í röð en tvo daga þarf til end...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 07:00

Langar biðraðir við kjörstaði

„Byltingin hefur breyst mikið. Bæði til hins betra og til hins verra,“ segir W...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 05:00

Biðin styttist hjá Assange

Hæstiréttur Bretlands tilkynnti í gær að á miðvikudaginn í næstu viku verði kveðinn upp úr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 04:00

Líkjast persónuleika manna

Simpansar og órangútanar eru með persónuleika sem líkjast mjög persónuleika manna. Þetta e...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:30

Ræddu útgáfu evruskuldabréfa í Brussel

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittust á fundi í Brussel í gærkvöldi og ræddu fjárhagsva...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 23:55

Perez Hilton hrifinn af Of Monsters and Men

Bandaríski stjörnubloggarinnar Perez Hilton lýsti yfir aðdáun sinni á íslensku hljómsveiti...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 22:30

Fyrsta fallhlífarstökkið án fallhlífar heppnaðist

Breski ofurhuginn Gary Connery stökk úr þyrlu í 1.6 kílómetra hæð í dag — án fallhlí...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 11:33

Reyna að sanna tilvist snjómannsins ógurlega

Viðamikil rannsókn er hafin á því hvort snjómaðurinn ógurlegi sé í raun og veru til. Það e...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 10:59

Morðkvendi handtekið í eigin brúðkaupsveislu

Kona ein í Rússlandi var handtekin á dögunum grunuð um morð. Það sem gerir málið athyglisv...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 09:03

Ætlar í fallhlífarstökk - án fallhlífar

Breskur ofurhugi ætlar sér á spjöld sögunnar síðar í dag með því að stökkva út úr flugvél ...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 09:39

Rætt við Írani um kjarnorkumálin

Embættismenn frá sex ríkjum hefja í dag viðræður við Írani um hina umdeildu kjarnorkuáætlu...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 08:59

Bauð miða á Ólympíuleikana á svörtum markaði

Háttsettur starfsmaður Ólympíunefndarinnar í Úkraínu hefur verið leystur frá störfum eftir...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 08:56

Egyptar kjósa sér forseta

Egyptar ganga í dag að kjörborðinu og kjósa sér forseta. Þetta er í fyrsta sinn í fimmþús...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 07:30

Egyptar kjósa forseta

Fyrstu frjálsu forsetakosningarnar í Egyptalandi hefjast í dag. Strangtrúaðir íslamistar o...  

Meira
Erlent 23. maí. 2012 04:00

Um 75 milljón ungmenni eru án vinnu

Nær 13 prósent allra ungmenna í heiminum á aldrinum 15 til 23 ára eru án atvinnu eða alls ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / ESB undirbýr refsiaðgerðir gegn Sýrlandi