Innlent

ESB-málið: Eiríkur segir Birgittu fara með tóma steypu

Atli Ísleifsson skrifar
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor og Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata.
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor og Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata. Vísir/Hörður Sveinsson/Valli
Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor segir Birgittu Jónsdóttur, þingmann Pírata, fara með tóma steypu þegar hún segir Íslendinga vera komna á byrjunarreit í aðildarviðræðunum við ESB og að „þráðurinn [sé] rofinn“.

Birgitta lét orðin falla í Face­book-færslu í dag eftir að hafa setið fund sam­eig­in­legr­ar þingmannanefnd­ar Alþing­is og Evr­ópuþings­ins sem í Hörpu. Birgitta sagðist þar loksins hafa fengið „algerlega afgerandi svör varðandi aðildarviðræðurnar“.

Evrópuþingmenn geta ekki gefið „afgerandi svor“

Eiríkur segir á Facebook-síðu sinni þetta ekki vera allskostar rétt hjá Birgittu.

„Í fyrsta lagi geta einstaka fulltrúar á Evrópuþinginu ekki gefið nein „afgerandi svör“ varðandi umsóknarstöðu ríkja. Ekki frekar að hún sem einstakur þingmaður geti eftir eigin höfði gefið þessi „afgerandi svör“ um stöðu alþjóðasamninga Íslands.

Í öðru lagi hefur Evrópuþingið þegar samþykkt aðildarumsókn Íslands. Og ekkert hefur verið afturkallað.

Í þriðja lagi er það þá undir framkvæmdastjórninni, að fenginni umsögn ráðherraráðsins, að ákveða hvort haldið yrði áfram, færi ríkisstjórn Íslands fram á það í framtíðinni. Sú ákvörðun kæmi ekki inn á borð Evrópuþingsins.

Þannig að þetta er nú bara tóm steypa og einungis til þess gert að rugla fólk í ríminu -- nokkuð sem stjórnmálamennirnir okkar virðast farnir að líta á sem frumskyldu sína, sumir hverjir allavega. Svo einkennilegt sem það nú er,“ segir Eiríkur.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald kemur ESB ekki hætishót við

Eiríkur segir það hins vegar vera allt annað mál, „að vildu menn halda með þetta mál áfram meir, færi vitaskuld best á því hér innanlands, að spyrja þjóðina að því fyrst í atkvæðagreiðslu. En það er annað mál og kemur Evrópusambandinu ekki hætishót við,“ segir Eiríkur.

Ísland sótti um aðild að ESB í júlí 2009 og hófust aðildarviðræður ári síðar. Eiginlegar samningaviðræður milli Íslands og ESB um einstaka kafla hófust þann 27. júní 2011. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra greindi stækkunarstjóra sambandsins frá því í júní 2013 að ríkisstjórn Íslands hefði ákveðið að gera hlé á aðildarviðræðum og að þær yrðu ekki hafnar að nýju nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Gunnar Bragi sendi svo ráðherraráðinu bréf í apríl á síðasta ári þar sem fram kom að afstaða ríkisstjórnarinnar væri sú að Ísland hygðist ekki halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ekki bæri að líta á Ísland sem umsóknarríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×