Viðskipti erlent

ESB aðlagar reglur sínar um viðskipti með selaafurðir að reglum WTO

Atli Ísleifsson skrifar
Íslensk stjórnvöld studdu Norðmenn og Kanadamenn í deilunni.
Íslensk stjórnvöld studdu Norðmenn og Kanadamenn í deilunni. Vísir/Getty
Evrópusambandið hefur breytt reglum sínum um viðskipti með selaafurðir þannig að þær standast nú reglur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).

Á heimasíðu ráðherraráðs ESB kemur fram að WTO hafi úrskurðað í júní á síðasta ári að reglur ESB stæðust reglur WTO, að frátöldum tveimur ákvæðum sem brytu í bága við reglur um að ekki megi mismuna í viðskiptum.

Með nýjum reglum sambandsins er tekið á þessu þar sem annað ákvæðið er fellt úr gildi og gerðar breytingar á hinu.

Kanadísk og norsk stjórnvöld kærðu selabann ESB til WTO fyrir fjórum árum, þegar reglur ESB, sem tóku gildi 2009, meinuðu ríkjunum að selja selaafurðir til aðildarríkja sambandsins.

Nánar má lesa um breytingarnar á síðu ESB.


Tengdar fréttir

Ráðherra styður Norðmenn og Kanadamenn í deilum við ESB

Á fundi í deilunefnd Alþjóðaviðskiptamálastofnunarinnar á föstudaginn lýsti Ísland yfir stuðningi sínum við Noreg og Kanada í máli þeirra gegn Evrópusambandinu vegna reglugerðar Evrópusambandsins sem kveður á um bann við innflutningi á selaafurðum inn á markaðssvæði ESB. Þá óskaði Ísland jafnframt eftir því að taka þátt í málsmeðferð kærunefndar í máli Kanada og Noregs gegn Evrópusambandinu sem þriðji aðili.

ESB gæti minnkað seladráp í Kanada

Evrópusambandið er um það bil að setja á innflutningsbann sem gæti hjálpað til við að binda endi á umdeildar selaveiðar Kanadamanna samkvæmt því sem dýraverndunarsamtök segja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×