Viðskipti innlent

ESA samþykkir byggðaaðstoð til Silicor Materials

Atli Ísleifsson skrifar
Til stendur að reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga.
Til stendur að reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA hefur samþykkt byggðaaðstoð til Silicor Materials vegna byggingar á sólarkísilverksmiðju á Grundartanga.

Á vef ESA segir að aðstoðin sé um 4,640 milljarða íslenskra króna virði og verði í formi skattahagræðis og ívilnandi reglna um leigu og fyrningu. Gert sé ráð fyrir að verksmiðjan skapi um 450 störf og stuðli að efnahagslegri uppbyggingu á svæðinu.

„Samkvæmt leiðbeiningarreglum um byggðaaðstoð verður EFTA-ríkið að sýna fram á að hin fyrirhugaða aðstoð sé viðeigandi og stuðli að byggðaþróun. Ríki þurfa einnig að tryggja að aðstoðinni sé stillt í hóf og að hagræði af henni vegi þyngra en möguleg samkeppnisröskun,“ segir í fréttinni.

Sven Erik Svedman, forseti ESA, segir að aðstoðin til Silicor Materials á Vesturlandi sé byggð á uppbyggingarstefnu, sem hafi í för með sér ávinning fyrir allt svæðið og því hafi ESA samþykkt hana.

ESA hefur auk þess komist að þeirri niðurstöðu að hin fyrirhugaða aðstoð hafi hvatningaráhrif þar sem ekki hefði verið ráðist í framkvæmdir án fyrirheita um ríkisaðstoð. „Aðstoðin stuðlar þar með að atvinnusköpun, laðar til sín fyrirtæki, eykur efnahagslega fjölbreytni og býr til störf.“ segir í fréttinni en opinber útgáfa ákvörðunarinnar verður birt á vefsíðu ESA, væntanlega innan eins mánaðar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×