Lífið

Eruð þið að borða agúrkur allan daginn?

Guðrún Ansnes skrifar
Systurnar spila með meistaraflokki kvenna fyrir Breiðablik, og gera það stútfullar af orku.
Systurnar spila með meistaraflokki kvenna fyrir Breiðablik, og gera það stútfullar af orku. vísir/Vilhelm
„Við erum eins og svo margir aðrir, höfum gaman af að smella myndum af matnum okkar og þegar komið var dágott safn í símann hugsuðum við með okkur að deila þessu með fleirum, ekki síst þar sem spurningar á borð við „eruð þið þá að borða agúrkur allan daginn?“ dúkka reglulega upp,“ segir Hildur Sif Hauksdóttir aðspurð um upphaf síðunnar Vegan.Fitness.

„Tilgangurinn er í raun bara að sýna að vegan lífsstíll þarf ekki að vera einhæfur og leiðinlegur,“ segir Jóna Kristín Hauksdóttir, og taka þær báðar undir þegar blaðamaður spyr hvort mýtan um að íþróttafólk verði að borða kjöt til að ná fram því besta sé ekki ansi lífseig, en báðar spila þær með meistaraflokki kvenna fyrir Breiðablik og ættu því að vita hvað þær syngja „Það er algjör mýta, sem á ekki rétt á sér. Fjölmargir afreksíþróttamenn hafa tamið sér þennan lífsstíl og jafnvel bætt árangur sinn. Mikil vitundarvakning er að eiga sér stað varðandi meðferð dýra og skaðsemi fjölmargra dýraafurða.“



Þrátt fyrir að lifa á tuttugustu og fyrstu öldinni, þar sem upplýsing er alltumlykjandi, segjast þær fá ansi misjöfn viðbrögð líkt og áður segir. „Fólk virðist vera mun meira hissa þegar einhver segist ekki borða kjöt og fisk en kippir sér svo ekkert upp við það ef einhverjum finnst kartöflur og jarðarber vond. Fáfræði er uppspretta flestra fordóma, og fólk virðist gleyma að við upplifum þetta ekki eins og að við búum við einhverjar takmarkanir,“ segir Hildur. „Þörfin fyrir síður eins og okkar er því sannarlega til staðar, og viðbrögðin hafa sömuleiðis sýnt okkur það,“ útskýrir Jóna að lokum, yfir sig ánægð með sífjölgandi fylgjendur. 

 

Máttu systurnar til með að deila uppskriftum með lesendum Vísis.

Uppáhald Hildar
Uppáhald Hildar

Tælenskur Núðluréttur Sjóðið vatn og hellið yfir hrísgrjóna núðlurnar og látið liggja í 4-5 mínútur meðan núðlurnar sjúga í sig vatnið. Steikið á pönnu uppáhalds grænmetið (ég notaði: brokkolí, rauð-, vor- og hvítlauk, papriku, gulrætur, sveppi og litlir maísstönglar) og bætið síðan við teryaki sósu og tamari. Öllu síðan blandað saman á pönnu og steikt í örfáar mín. Gott að strá svo sesamfræjum yfir allt saman og hræra við fersku spínati.

Uppáhald Jónu
Uppáhald Jónu,

Bananaís

Skelltu 3 vel þroskuðum frosnum bönunum í blandara með 1 dl að möndlumjölk. Bættu við 1-2 msk ósætuðu hreinu kakó, stevia (eftir smekk) og haltu afram að blanda þangað til áferðin verður ískennd, gæti tekið nokkrar mín. Svo toppað með uppáhalds berjum/hnetum/fræjum hollt og gott en fullnægir sykurþörfinni 100%.


Tengdar fréttir

Stelpurnar sem skelltu í lás

Það munar ellefu árum á miðvarðarpari Breiðabliks í Pepsi-deild kvenna í fótbolta en þrátt fyrir að vera á fyrsta ári saman spila þær eins og þær hafi aldrei gert neitt annað. Fyrir vikið hefur ekki verið skorað hjá Blikum í Pespi-deildinni í 77 daga og 9

Vegan kartöflusalat

Albert Eiríksson heldur úti metnaðarfullu matarbloggi sem er að mestu vegan, hér deilir hann kartöflusalati sem passar með hvaða grillmat sem er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×