Heilsa

Ertu á leiðinni í sumarfrí?

Nanna Árnadóttir skrifar
Vísir/Getty
Ein stærsta ferðahelgi ársins er að renna upp, fyrsta helgin í júli. Stór hluti landsmanna ákveður að gera sér dagamun, fara í ferðalag og upplifa eitthvað annað en sama gamla hversdagsleikann.

Á svona ferðalögum eru vegasjoppurnar oft vinsælir áfangastaðir til þess að næra sig, fara á klósettið og teygja aðeins úr líkamanum. Í vegasjoppunum er þó oft lítið um hollan mat og fara fjölmargir þá leið að fá sér bara eina með öllu, kók og prins, hamborgara og franskar eða eitthvað álíka óhollt.

Getum við ekki gert aðeins betur og mögulega fengið skemmtilegri upplifun í staðinn? Vissulega kostar það örlítið meiri fyrirhöfn en að skreppa í sjoppuna en það er svo sannarlega þess virði.

Útbúðu hollt nesti

Þegar kemur að því að gera hollt nesti er undirbúningur aðalatriðið. Farðu tímanlega í búðina og keyptu þau hráefni sem þig vantar.

Ég mæli með því að útbúa hollar samlokur. Ég kaupi alltaf gróft brauð sem inniheldur góðar og hollar trefjar og á það set ég ýmist helling af grænmeti og eitthvað til að bleyta aðeins upp í brauðinu eins og pestó eða smurost, eða hollt túnfisksalat sem er í miklu uppáhaldi hjá mér.

Í það set ég eftirfarandi hráefni:

1 dós túnfiskur

1 lítil dós kotasæla

Smátt saxaður rauðlaukur

Avókadó eða egg

Pipar og smá hvítlaukskrydd

Ég mæli svo líka með því að hafa nóg af ávöxtum og grænmeti, eins og t.d. gulrótum og gúrkubitum með, sem og ferskum safa og vatni.

Snætt undir berum himni

Þegar meginuppistaða nestisins er holl skiptir ekki miklu máli þótt eitt súkkulaðikex eða prinspóló læðist með, bara svo lengi sem hollustan er í fyrirrúmi.

Það sem mér finnst svo frábært við það að taka með nesti er að maður þarf ekki að sitja inni á sveittum sjoppum þar sem braslyktin yfirgnæfir allt. Maður getur fundið sér fallega laut til þess að setjast í, sett teppi á grasið og notið náttúrunnar á meðan maður hleður batteríin fyrir næstu keyrslu.


Tengdar fréttir

Er hægt að æfa of mikið?

Svo virðist sem margir fylgi þeirri reglu að því meira sem maður æfir, því betra og því meiri árangur. Margir sem byrja á æfingaprógrami falla í þá gryfju að æfa alltof mikið í þeirri von um að árangurinn komi fyrr.

Kveddu harðsperrur fyrir fullt og allt

Margir velta því fyrir sér hvort að það sé merki um góð átök í líkamsræktinni að fá harðsperrur. En hvað eru harðsperrur og er hægt að koma í veg fyrir þær fyrir fullt og allt?

Þú þarft að hlaupa í átt að markmiðunum þínum

Hvort sem þú ætlar að taka þátt í hlaupakeppni einhvers konar í sumar eða hlaupa þér til skemmtunar þá er núna rétti tíminn til að undirbúa jarðveginn fyrir frábært hlaupasumar með því að setja sér raunhæf og skýr markmið.

Fjögurra vikna sumaráskorun

Sumarið er tími afslöppunar en þó ekki hreyfingarleysis og er því kjörið að nýta ferska loftið til að sprikla smá.

Undirbúningur fyrir átökin

Þeir sem stunda hlaupaíþróttina ættu með öllu móti að reyna að stunda styrktaræfingar með hlaupunum til þess að halda líkamanum í góðu jafnvægi.

Hreyfing eftir barnsburð

Það borgar sig að fara varlega af stað í líkamsrækt eftir barnsburð og nauðsynlegt að vita hvað ber að varast þegar byrjað er á ný? Margir brenna sig á því að fara of snemma af stað og af of mikilli ákefð.

Fjögurra vikna sumaráskorun - vika 3

Þá er komið að þriðju vikunni í fjögurra vikna áskoruninni. Núna er komið að þér að vera í besta formi lífs þíns. Það eina sem þú þarft að gera er að drífa þig af stað og byrja. Fylgdu þessum leiðbeiningum og finndu fyrri vikur á Heilsuvísi.

Tekur vinnustaðurinn þinn þátt?

Það er sannað að þeir einstaklingar sem stunda reglulega líkamsrækt eru betri starfsmenn en þeir sem gera það ekki.

Breytt hugarfar og nýr lífsstíll

Áramótaheitin eiga mörg það sammerkt að snúa að andlegri eða líkamlegri heilsu. Áður en farið er af stað af fullum krafti er gott að gera sér grein fyrir hvað er á bak við sett markmið.

4 vikna Sumaráskorun Vika 4

Það er leikandi létt að koma sér af stað í markvissa útiveru með daglegu prógrammi sem byggt er á fjölbreyttri hreyfingu.

Er reglubundin hreyfingáhættusöm?

Margir setja óttann við álagsmeiðsli fyrir sig þegar kemur að reglulegri hreyfingu. Gott er að hafa nokkrar reglur í huga til þess að fyrirbyggja meiðsli og taka rétt á þeim ef þau láta á sér kræla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×