Heilsa

Ert þú búin að fá þér bleiku slaufuna?

Rikka skrifar
Mynd/skjáskot
Í dag hefst hið árlega fjáröflunar- og árvekniátak Krabbameinsfélagsins sem kennt er við Bleiku slaufuna en hún er tákn félagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Átakið stendur yfir í allan október og er að þessu sinni lögð sérstök áhersla á að hvetja ung­ar kon­ur til að fara í leg­hálskrabba­meins­leit.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Krabba­meins­fé­lag­inu kem­ur fram að um 45% kvenna sem boðið er að mæta til 
leit­ar hjá Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins mæti ekki inn­an til­skil­ins tíma og að þó svo að marg­ar skili sér seint og um síðir séu alltof marg­ar sem ekki mæti reglu­lega. Áður fyrr hafi hins­veg­ar 84% kvenna á aldr­in­um 23 ára til 65 ára farið reglu­lega í slíka leit en nú hafi sú tala lækkað niður í 64% sem sé mikið áhyggju­efni.

Þetta er 15. árið í röð sem að átakið er sett af stað og ríkir jafnan eftirvænting þegar slaufan sjálf er frumsýnd. Að þessu sinni var það Stefán Bogi Stefánsson, gullsmiður hjá Metal design sem hannaði slaufuna.

Slaufuna í ár sem og fyrri ár má nálgast á heimasíðu Krabbameinsfélagsins sem og öðrum útsölustöðum. Styðjum baráttuna gegn krabbameinum og höfum slaufuna sýnilega í október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×